Skip to main content

Viðburðir

Leiðsögn um handritin frá Svíþjóð

Laugardaginn 16. maí klukkan 14 mun Guðrún Nordal, prófessor og forstöðumaður Árnastofnunar, veita leiðsögn um íslensku handritin sem fengin voru að láni frá Svíþjóð og verða til sýnis í Eddu næstu sex mánuði. Handritin fimm eru: Hómilíubókin sem skrifuð var um 1200, Uppsala-Edda, eitt af fjórum aðalhandritum Snorra-Eddu, eitt af aðalhandritum Grettis sögu, Bergsbók sem geymir konungasögur og er auk þess elsta handrit kvæðisins Lilju og loks handrit Snorra-Eddu frá 17. öld.  

Athugið takmarkað pláss.

Vinsamlegast skráið ykkur hér.

Sigurður St. Jónsson
2026-05-16T14:00:00 - 2026-05-16T15:00:00