Höfundur verður til. 150 ár frá fæðingu Guðmundar Magnússonar / Jóns Trausta
Hátíðarmálþing á afmælisdegi Guðmundar Magnússonar í Iðnó 12. febrúar 2023
Dagskrá
13.00 Guðrún Nordal forstöðumaður Árnastofnunar: Höfundur verður til: frá Guðmundi til Jóns Trausta
13.20 Hrafnkell Lárusson, sérfræðingur við Þjóðskjalasafn Íslands: Seyðfirski aldamótabærinn og Austurland í tveimur skáldverkum
13.50 Sveinn Yngvi Egilsson, prófessor við Háskóla Íslands: Íslandsvísur og viðtökur þeirra
14.20 Hlynur Helgason, dósent við Háskóla Íslands: Birtingarmynd lands
14.50–15.20 Kaffihlé
15.20 Jón Yngvi Jóhannsson, lektor við Háskóla Íslands: „Þá stækkar Ísland inn á við“. Hálendið í Heiðarbýli Jóns Trausta
15.50 Guðrún Steinþórsdóttir, sjálfstætt starfandi fræðimaður: „Hann elskar mig. – Hann elskar mig ekki.“ Um ástir og örlög í sagnabálki Jóns Trausta um Höllu og heiðarbýlið
16.20 Atli Antonsson, doktorsnemi við Háskóla Íslands: Sögur Jóns Trausta frá Skaftáreldi og Eldklerkurinn sem skáldsagnapersóna
16.50 Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur: Draumalandið
17.10 Ráðstefnuslit
Ef veður leyfir verður gengið í Hólavallakirkjugarð og kveikt á kerti við leiði skáldsins.
Ráðstefnan er skipulögð af Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands, Rithöfundasambandi Íslands og Árnastofnun.