Skip to main content

Viðburðir

Altarið, stoðirnar og söfnuðurinn: Hómilíubókin í ljósi hagnýtrar samtímaguðfræði

Fyrirlestur Sigríðar Guðmarsdóttur: Altarið, stoðirnar og söfnuðurinn.

Sigríður Guðmarsdóttir flytur fyrirlestur í tengslum við sýninguna Heimur í orðum í fyrirlestrasal Eddu.

Hvað gerist þegar innflutt guðfræði mætir íslenskum veruleika? Getur þýdd prédikun frá upphafi þrettándu aldar enn mótað kirkjulega helgisiði og prédikun á Íslandi?

Í erindinu verður íslenska hómilíubókin skoðuð sem sögulegur vitnisburður um prédikun og helgisiði og hún borin saman við prédikanir norsku hómilíubókarinnar og íslensk helgisiðarit.

Bækurnar geyma fyrst og fremst þýddar prédikanir, en stafkirkjuprédikunin, sem talin er af norrænum uppruna, veitir sérstakan samanburðarflöt. Athugað verður hvernig erlendum guðfræðihugmyndum er miðlað á móðurmáli og hvernig tungutak, myndlíkingar og allegórísk túlkun staðfæra sameiginlegan evrópskan prédikunararf.

Í stafkirkjuprédikuninni verður kirkjubyggingin sjálf að guðfræðilegu táknkerfi: altarið merkir Krist, stoðirnar postula og spámenn og klukkurnar kennimenn. Þessi sýn kallar á samtal við ný handbókardrög þjóðkirkjunnar þar sem glímt er við samkirkjulega þætti helgihaldsins, skiljanlegt og inngildandi tungutak, biblíulegt myndmál, þátttöku safnaðarins og jafnvægi, festu og sveigjanleika í helgihaldi.

Erindið spyr því ekki aðeins hvað hómilíurnar merkja í sögulegu samhengi heldur hvernig þær geti haft áhrif á íslenska helgisiði og prédikunarhætti nú um stundir.

Nánar um fyrirlesara

Sigríður Guðmarsdóttir er prófessor í hagnýtri guðfræði við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Rannsóknir hennar spanna meðal annars helgisiða- og sálmafræði, guðfræði norðurslóða, femíníska og hinsegin guðfræði, afnýlenduvæðingu og vistguðfræði. Í kennslu og rannsóknum fæst hún við tengsl guðfræði, kirkjulegrar iðkunar, menningar og samfélags.

Viðburður á Facebook

2026-11-03T12:00:00 - 2026-11-03T12:45:00