Dagana 11.–13. júlí nk. verður Náttúrubarnahátíð á Ströndum haldin á Sauðfjársetrinu í Sævangi þar sem Náttúrubarnaskólinn er til húsa.
Dagskrá hátíðarinnar einkennist af alls konar fróðleik og fjöri sem tengist náttúrunni á einn eða annan hátt. Meðal þess sem boðið verður upp á laugardaginn 12. júlí er kynning á heimi handritanna en Marta Guðrún Jóhannesdóttir, safnkennari Árnastofnunar í Eddu, mun fræða gesti hátíðarinnar um hvernig efniviður úr náttúrunni var nýttur til þess að gera fyrstu íslensku bækurnar, það er að segja skinnhandritin okkar.
Gestir fá að handleika bókfell, fjaðurstafi og lyfta Plateyjarbók sem er nákvæm eftirlíking af Flateyjarbók, en sú bók er eitt stærsta miðaldahandritið sem varðveitt er í handritasafni Árnastofnunar.
Hægt verður að vafra um vefinn Ísmús og hlusta á gamlar upptökur ásamt fleiru.
Náttúrubarnahátíðin er fjölskylduhátíð og er aðgangur ókeypis.