Skip to main content

Viðburðir

EX LIBRIS III – Aðventa (tónleikar)

Þjóðlagasveitin Gadus Morhua.

Viðburður á Facebook

Tónleikarnir fara fram á bókasafninu í Eddu og tilheyra tónleikaröðinni Ex Libris. Á sama tíma fer fram jólafjölskyldusmiðja fyrir alla fjölskylduna.

Gadus Morhua hefur þegar haslað sér völl sem þjóðlaga-usla-sveit og er þekkt fyrir að „djöflast í forminu“. Arnar Eggert Thoroddsen komst svo að orði þegar hann fjallaði um fyrsta geisladisk hópsins, Peysur og parruk, í Morgunblaðinu á síðasta ári. Þar gat hann þess einnig að tónlistarflutningur hópsins einkenndist af óvæntum bólfélögum; frumsömdu efni í bland við ævafornt, dökkleitu langspili úr innstu kynstrum baðstofunnar og flautuleik úr furðuskógi.

Gadus Morhua hefur hingað til snúið eldri þjóðlögum bæði á réttuna og rönguna og tvinnað þau saman við barokktóna. En hnignunarkennd samtvinnun baðstofuarfs og barokktónlistar, í bland við frumsamdar nýsmíðar orða og tóna innan sama hljómheims, er aðal sveitarinnar.

Nú ætlar Gadus Morhua heldur betur að uslast með jólalögin og blanda saman nýjum kvæðum og eldri í dagskrá þeirra sem ber heitið Frábæra – bæra. Þar munu þau bjóða upp á sannkallaða jólabaðstofustund með langspil, kertaljós og jólaskraut að vopni. Jafnvel munu slæðast inn frumsamin jólalög í anda þorskatríósins og auðvitað mun Gilsbakkaþula vera flutt.

Sveitin Gadus Morhua er skipuð:

Björk Níelsdóttur, söngur og langspil

Eyjólfi Eyjólfssyni, flauta, söngur og langspil

Steinunni Arnbjörgu Stefánsdóttur, selló og söngur

Aðgangseyrir 2.500 kr.

Merki Ex libris tónleikaraðarinnar.
Valgerður Halldórsdóttir

Um tónleikaröðina Ex Libris

Verið velkomin að hlýða á kammertónlist í hinum glæsilega bókasal Eddu í vetur.

Í tónleikaröðinni er annars vegar lögð áhersla á samtímatónlist og hins vegar á nýsköpun í flutningi eldri tónlistar, bæði þjóðlegrar tónlistar og barokks.

Allir tónleikarnir fara fram í bókasafni Eddu á laugardögum og hefjast klukkan 12 og standa í tæpa klukkustund.

Smellið hér til að skoða dagskrá vetrarins.

2026-12-05T12:00:00 - 2026-12-05T13:00:00