Tónleikaröð veturinn 2026–2027
Á haustdögum hefst ný tónleikaröð, Ex Libris, sem Árnastofnun stendur fyrir.
Allir tónleikarnir fara fram í bókasafni Eddu á laugardögum og hefjast klukkan 12 og standa í tæpa klukkustund.
Að þeim loknum er hægt að njóta veitinga á kaffihúsinu Ými. Einnig er gaman að skoða handritasýninguna Heimur í orðum í Eddu fyrir eða eftir tónleika.
Listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar er Valgerður G. Halldórsdóttir.

19. sept. – Nánd
Útgáfutónleikar og aðgangur ókeypis. Sigurgeir Agnarsson sellóleikari leikur verk eftir frændurna Huga Guðmundsson og Hafliða Hallgrímsson.
31. okt. – Vetrarsól
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir söngkona og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari flytja íslensk og erlend sönglög sem hverfast um ástina.
5. des. – Aðventa
Þjóðlagasveitin Gadus Morhua býður upp á sannkallaða jólabaðstofustund með langspil, kertaljós og jólaskraut að vopni.
6. feb. – Þorra-Edda
Hljómsveitin Umbra flytur íslensk þjóðlög í eigin útsetningum og frumsamið efni þar sem texti er sóttur í miðaldabókmenntir.
1. maí – Barokk-Bröns
Fiðluleikarinn Soko Yoshida og semballeikarinn Halldór Bjarki Arnarson flytja barokktónlist.
Nánari upplýsingar síðar.
Nánari upplýsingar síðar.