Ársfundur Árnastofnunar verður haldinn 23. apríl í fyrirlestrasal Eddu kl. 8.15–10 og hefst með morgunhressingu kl. 8.15 á Ými kaffihúsi á 1. hæð Eddu.
Dagskrá í fyrirlestrasal hefst kl. 8.30. Yfirskrift fundarins að þessu sinni er Tækifæri.
- Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, flytur ávarp.
- Illugi Gunnarsson stjórnarformaður. Ávarp
- Guðrún Nordal forstöðumaður. Starfsemi stofnunarinnar árið 2024
- Atli Jasonarson verkefnisstjóri og Steinþór Steingrímsson rannsóknarlektor. m.is og máltækni – næstu skref
- Guðvarður Már Gunnlaugsson rannsóknarprófessor. Konungsbók og nýjungar í útgáfu gamalla texta
- Marta Guðrún Jóhannesdóttir safnkennari. „Hvað er með ásum?” Safnkennsla í Eddu
- Branislav Bédi verkefnisstjóri. Íslenskukennsla við háskóla erlendis
- Rósa Þorsteinsdóttir rannsóknardósent. „Eitt orð getur spillt allri bókinni“
Allir velkomnir.
Skráning hér.
2025-04-23T08:15:00 - 2025-04-23T10:00:00