Skip to main content

Fréttir

Vigdísarþing 15.-17. apríl

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur stendur fyrir alþjóðlegri ráðstefnu dagana 15.-17. apríl 2010 í tilefni af áttræðis afmæli frú Vigdísar Finnbogadóttur. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Varðveisla til framtíðar: Sjálfbærni tungumáls, menningar og náttúru og mun hún fara fram við Háskóla Íslands. 

Ráðstefnan samanstendur af lykilfyrirlesurum ásamt samhliða málstofum þar sem fjallað verður um bókmenntir, menningu og tungumál frá ýmsum sjónarhornum.

Meðal lykilfyrirlesara verða:

  • Martti Ahtisaari, fyrrverandi forseti Finnlands og friðarverðlaunahafi Nóbels
     
  • Irina Bokova, framkvæmdastjóri UNESCO
     
  • Bernard Comrie, forstöðumaður málvísindadeildar Max Planck stofnunarinnar í Leipzig
     
  • Claire Kramsch, prófessor og forstöðumaður tungumálamiðstöðvar Berkeley háskóla í Kaliforníu
     
  • Páll Skúlason, prófessor og fyrrv. rektor Háskóla Íslands

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu ráðstefnunnar: http://vefir.hi.is/vigdisconference2010/