Skip to main content

Fréttir

Vatnsfjörður í Ísafirði

Bókin Vatnsfjörður í Ísafirði.

 

Guðrún Ása Grímsdóttir rannsóknarprófessor á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er höfundur nýútkomnar bókar sem nefnist Vatnsfjörður í Ísafirði. Á vef útgefanda segir:

Í þessu undirstöðuriti, sem ætti að vera ofarlega á lista hjá öllu áhugafólki um sögu Íslands, er fjallað um einn þekktasta sögustað frá upphafi byggðar í landinu og allt fram á okkar daga. Þess er gætt að almenningur geti haft af henni full not ásamt fræðimönnum, en höfundur byggir á nýjustu fornleifarannsóknum á staðnum og öllum tiltækum rituðum heimildum, bæði prentuðum og óprentuðum. Saga Vatnsfjarðar er saga Íslands í smækkaðri mynd. Þar hafa búið margir af merkustu Íslendingum fyrr og síðar og staðurinn skipar mikilvægan sess í Íslandssögunni. Síra Baldur Vilhelmsson er síðasti ábúandi og prestur sem við sögu kemur í Vatnsfjarðarbók og situr hann staðinn enn á friðstóli í aldurdómi sínum ásamt eiginkonu sinni Ólafíu Salvarsdóttur. Í ritnefnd verksins eru þeir prófessorarnir Torfi H. Tuliníus, sem er ritstjóri og Már Jónsson ásamt síra Baldri sem átti frumkvæði að verkinu.

Lesa um bókina á vef útgefanda.