Skip to main content

Fréttir

Vasulka-Stofa

Á 130 ára afmæli Listasafns Íslands, 16. október, verður Vasulka-Stofa opnuð, og verður þar með undirdeild í safninu. Vasulka-Stofa mun vista gagnasafn vídeólistamannanna, Steinu og Woody Vasulka. Vasulka-Stofa verður jafnframt miðstöð rafmiðlalista á Íslandi.

Með stofnun Vasulka-Stofu beinir Listasafn Íslands athygli að varðveislu vídeólistar sem hefur hingað til skort á. Sem höfuðsafn á sviði myndlistar gegnir Listasafn Íslands lykilhlutverki í varðveislu íslenskrar myndlistar og á það ekki síður við um vídeóverk og margmiðlunarlist en þá list sem unnin er með eldri tækni. Deildarstjóri Vasulka-Stofu er Kristín Scheving.

Steina Vasulka og maður hennar Woody dvöldu í byrjun árs í fræðimannsíbúð Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Steina var hér á landi til að kynna sér handritin í safni Árnastofnunar og myndefni þeirra til að fá innblástur í list sína.

   Steina og Woody Vasulka kynna sér handritin hjá Guðrún Nordal forstöðumanni Árnastofnunar. Mynd: Jóhanna Ólafsdóttir ljósmyndari.  

Steina fæddist í Reykjavík og lærði klassíska tónlist og fékk námsstyrk til að fara á listaskóla í Prag árið 1959. Þar kynntist hún manni sínum Woody Vasulka. Steina og Woody fluttu til New York borgar árið 1965 og voru þar brautryðjendur í vídólist sem þau sýndu í Whitney safninu. Frá árinu 1980 hafa þau búið í Santa Fe í Nýju Mexíkó.