Skip to main content

Fréttir

Vald ástríðna / ástríður valds

JL húsið, Hringbraut 121.

 

Málþing Reykjavíkur Akademíunnar
Laugardaginn 5. apríl kl. 11:00 – 15:00 í sal Reykjavíkur Akademíunnar
í JL-Húsinu Hringbraut 121

Reykjavíkur Akademían býður til málþings um ástríður og vald þar sem Björn Þorsteinsson, Lára Magnúsardóttir, Benedikt Hjartarson og Guðrún Ingólfsdóttir munu kynna rannsóknir sínar, ræða kenningalegar undistöður og aðferðafræðilega nálgun.

Guðrún Ingólfsdóttir: Ástríðufull fílólógía.
Guðrún er doktor í íslenskum bókmenntum frá Háskóla Íslands. Hún er sjálfstætt starfandi fræðimaður með aðstöðu á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Benedikt Hjartarson: „Og hvaða erindi á þetta svo við okkar samtíma?“ Um nektarmenningu, dulspeki, esperanto, framúrstefnu, fasisma, alpaklifur og rafmagnsguðfræði.
Benedikt er með doktorspróf frá hugvísindasviði Rijksuniversiteit í Groningen og er lektor í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands.

Lára Magnúsardóttir: Ástríðustjórnun – um rannsókn á opinberu valdi og einkalífi.
Lára er er akademískur sérfræðingur hjá Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra og forstöðumaður þeirrar stofnunar.

Björn Þorsteinsson: Tittlingaspælingar á tuttugustu og fyrstu öld.
Björn er doktor í heimspeki frá Université Paris 8. Hann starfar við Heimspekistofnun Háskóla Íslands.

Umræðustjóri verður dr. Þorgerður Þorvaldsdóttir.

Hugmyndir 21. aldarinnar er röð málþinga á vegum Reykjavíkur Akademíunnar þar sem leitast verður eftir að efna til þverfaglegra umræðu um strauma og stefnur í mannvísindum samtímans og með hvaða hætti þeir birtast í verkum íslenskra vísindamanna.

Vald ástríðna / Ástríður valds er fjórða málþingið í röðinni.
Verkefnisstjóri er Sesselja G. Magnúsdóttir forstöðukona RannsóknaSmiðju ReykjavíkurAkademíunnar rannsoknasmidja@akademia.is

Almennt skráningargjald kr. 2500
Skráningargjald fyrir félaga í RA kr. 1500
Innifalið í skráningargjaldi er léttur hádegisverður og kaffiveitingar
Skráning fer fram á www.akademia.is