Félag um átjándu aldar fræði og Menntaskólinn að Laugarvatni halda málþing í hátíðasal skólans laugardaginn 2. maí nk. Málþingið er haldið í tilefni þess að á árinu eru liðin hundrað ár frá fæðingu Ólafs Briem, fræðimanns og kennara við ML. Það ber yfirskriftina Útilegumenn í sögu og bókmenntum, en saga útilegumanna var eitt af rannsóknarsviðum Ólafs. Málþingið hefst kl. 13:00 og því lýkur um kl. 17:00. Að loknu setningarávarpi Halldórs Páls Halldórssonar, skólameistara ML, og ávarpi Þóru Kristjánsdóttur, formanns Félags um átjándu aldar fræði, verða flutt sex erindi sem hér segir:
Kennarinn Ólafur Briem. Drög að mannlýsingu
Kristinn Kristmundsson, fv. skólameistari
Ólafur Briem og íslensk fræði
Vésteinn Ólason, fyrrverandi prófessor
Um útilegumannabyggðir á 17. öld
Guðrún Ása Grímsdóttir, sagnfræðingur
KAFFIHLÉ
Nýjar frásagnir af Fjalla-Eyvindi
Björk Ingimundardóttir, skjalavörður
Útilegumenn, almenningur og réttarfar í íslenskum viðburðasögum
Kristín Birna Kristjánsdóttir, þjóðfræðingur
Útilegumenn á leiksviði
Kristján Árnason, bókmenntafræðingur og rithöfundur
Fundarstjóri: Óskar H. Ólafsson, fv. aðstoðarskólameistari ML
Flutningur hvers erindis tekur um 20 mínútur. Um 10 mínútur gefast til fyrirspurna og umræðna að loknu hverju erindi.
Útdrættir úr erindum liggja fyrir á málþinginu. Þeir verða síðar aðgengilegir á vefsíðu Félags um átjándu aldar fræði, www.akademia.is/18.oldin
Kaffiveitingar verða í boði Menntaskólans að Laugarvatni.
ALLIR VELKOMNIR!