Nýsköpunarsjóður námsmanna styrkir nemendur til rannsóknar- og þróunarverkefna yfir sumartímann. Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknarstofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunn- og meistaranámi við háskóla til að sinna rannsóknar- og þróunarverkefnum.
Tilkynnt var um úthlutun fyrir sumarið 2026 25. mars síðastliðinn. Alls bárust 234 umsóknir.
Tveir styrkir komu í hlut starfsmanna og verkefna á vegum Árnastofnunar:
Hjalti Snær Ægisson, rannsóknarlektor við Árnastofnun, hlaut styrk upp á 2.040.000 kr. fyrir verkefnið Alskik: Íslendingasögur á vefnum.
Verkefnið felst í því að útbúa vef þar sem texti allra Íslendingasagnanna er gefinn út með nútímastafsetningu ásamt skýringum og margvíslegu stoðefni. Heildarútgáfa Sögu forlags frá 2018 er lögð til grundvallar. Hefðbundnar orðskýringar verða látnar fylgja sögunum, en auk þess verður boðið upp á ítarlegri skýringar á heilum setningum og efnisgreinum. Kort og ættartölur verða auk þess hönnuð sérstaklega fyrir útgáfuna þar sem við á. Meginmarkið verkefnisins er að gera texta allra Íslendingasagna aðgengilegan almenningi í skýrum búningi með margvíslegum viðbótum og aukaefni þar sem aukið er við skilning lesenda.
Tveir nemendur, annar við Háskóla Íslands og hinn við Listaháskóla Íslands, munu vinna við þetta verkefni í sumar.
Caitlin Laura Richter frá Háskólanum í Reykjavík og Branislav Bédi, verkefnisstjóri við Árnastofnun, hlutu styrk upp á 2.040.000 kr. fyrir verkefnið User testing for Icelandic pronunciation training.
Verkefnið notar nýjustu aðferðir til að mæla og meta framburð á íslensku. Tæknin verður prófuð við raunverulegar aðstæður og virkni hennar könnuð meðal nemenda í íslensku sem öðru máli. Niðurstöðurnar munu nýtast við frekari þróun talmálstækninnar Nýróms.
Tveir nemar, annar við Háskólann í Reykjavík og hinn við Háskóla Íslands, munu vinna við þetta verkefni í sumar.