Skip to main content

Fréttir

„Undir Hornafjarðarmána“ 21.-23. maí

Sagnfræðingafélag Íslands og Félag þjóðfræðinga á Íslandi áætla að halda næstu landsbyggðaráðstefnu sína á Suðausturlandi; í Suðursveit og á Höfn Hornafirði. Ráðstefnan verður haldin í samvinnu við Fræðasetur Háskóla Íslands á Höfn og ReykjavíkurAkademíuna, helgina 21.-23. maí.

Fyrirsögn ráðstefnunnar er að þessu sinni UNDIR HORNAFJARÐARMÁNA og áhersla verður lögð á samspil mannlífs, menningar og náttúru á Suðausturlandi. Óskað er eftir erindum á sviði hug- og félagsvísinda sem falla að þessu efni. Tillögur að erindum sendist til Írisar Ellenberger, formanns Sagnfræðingafélagsins, netfang irisel@hi.is og Soffíu Auðar Birgisdóttur, sérfræðings á Háskólasetrinu á Höfn, netfang: soffiab@hi.is, fyrir 15. febrúar. Nánari upplýsingar má einnig fá í síma: 8614832 (Íris) og 4708042 eða 8482003 (Soffía Auður).