Skip to main content

Fréttir

Umsóknarfrestur til handritarannsókna í Kaupmannahöfn er til hádegis 20. nóvember

Umsókn um ríkisstyrk Árnastofnunar í Kaupmannahöfn fyrir árið 2009 rennur út 20. nóvember n.k. kl. 12. Styrkurinn er veittur íslenskum ríkisborgurum til handritarannsókna í Den Arnamagnæanske Samling í Kaupmannahöfn.

Um styrkinn geta sótt fræðimenn, með eða án háskólamenntunar. Styrkurinn er þetta árið um 21.000 danskar krónur á mánuði, auk ferðakostnaðar, og má veita umsækjanda í allt að tólf mánuði. Að jafnaði er styrkurinn aðeins veittur í 1-3 mánuði.

Styrknum fylgir sú kvöð, að styrkþegi skal skila stuttri greinagerð um árangur sinn af rannsóknardvölinni. Greinargerðina skal senda sem fyrst eftir að dvölinni í Kaupmannahöfn lýkur og í síðasta lagi mánuði eftir næstu áramót.

Umsóknum eiga að fylgja helstu æviatriði (curriculum vitae), stutt greinargerð fyrir væntanlegu rannsóknarverkefni ásamt meðmælum, og einnig skal gera grein fyrir launagreiðslum á Íslandi meðan á dvölinni í Kaupmannahöfn stendur. Umsóknir ber að stíla til ritara Den Arnamagnæanske Kommission, prófessor (em.), dr. phil. Jonna Louis-Jensen, og senda til overassistent John Tietze, Den Arnamagnæanske Kommission, Københavns Universitet, Njalsgade 136, DK-2300 København S, svo tímanlega að þær séu komnar viðtakanda í hendur fyrir kl. 12, 20. nóvember 2008.

Det Arnamagnæanske Stipendium

Umsókn um styrk til rannsókna í Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling (Árnasafni) eða í öðrum samsvarandi söfnum í Kaupmannahöfn rennur út 20. nóvember n.k. kl. 12.

Styrkurinn sem er greiddur út í einu eða skipt í minni upphæðir er veittur námsmönnum og kandídötum sem hafa sýnt svo mikla þekkingu á norrænni eða íslenskri tungu, sögu eða bókmenntum, að af þeim megi vænta meiri afreka en almennt gerist í þessum greinum eða í einhverri þeirra.

Styrknum fylgir sú kvöð, að styrkþegi skal skila stuttri greinagerð um árangur sinn af rannsóknardvölinni. Greinargerðina skal senda sem fyrst eftir að dvölinni í Kaupmannahöfn lýkur og í síðasta lagi mánuði eftir næstu áramót.

Umsóknum eiga að fylgja helstu æviatriði (curriculum vitae), stutt greinargerð fyrir væntanlegu rannsóknarverkefni ásamt meðmælum, og einnig skal gera grein fyrir launagreiðslum á Íslandi meðan á dvölinni í Kaupmannahöfn stendur. Umsóknir ber að stíla til ritara Den Arnamagnæanske Kommission, prófessor (em.), dr. phil. Jonna Louis-Jensen, og senda til overassistent John Tietze, Den Arnamagnæanske Kommission, Københavns Universitet, Njalsgade 136, DK-2300 København S, svo tímanlega að þær séu komnar viðtakanda í hendur fyrir kl. 12, 20. nóvember 2008.

Umsókn um báða styrkina

Ef umsækjandi óskar þess að umsókn hans verði metin styrkhæf úr báðum þessum sjóðum skal hann geta þess. Ekki er ætlast til að tvær umsóknir séu skrifaðar, sín um hvorn styrkinn.