Í tilefni af 750. ártíð Snorra Sturlusonar, 23. september 1991, ákvað ríkisstjórn Íslands að efna til styrkja sem kenndir yrðu við nafn hans. Samkvæmt reglum um styrkina, sem gefnar voru út 1992, skulu þeir árlega boðnir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum til að dveljast á Íslandi í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi. Styrkirnir skulu veittir í þrjá mánuði hið minnsta og miðast við greiðslu á ferðakostnaði styrkþega og dvalarkostnaði innanlands.
Styrkir Snorra Sturlusonar fyrir árið 2012 voru auglýstir í júlí sl. með umsóknarfresti til 1. nóvember. Níutíu og þrjár umsóknir bárust frá þrjátíu löndum.
Í úthlutunarnefnd styrkjanna eiga sæti Úlfar Bragason, rannsóknarprófessor, formaður, Ásdís Egilsdóttir, prófessor, og Ingibjörg Haraldsdóttir, rithöfundur. Nefndin hefur nú lokið úthlutun.
Þau sem hljóta styrki árið 2012, til þriggja mánaða hvert, eru:
Nataliya L. Ogurechnikova, prófessor við Kennaraháskólann í Moskvu, til að rannsaka lýsingarorð í íslenskum miðaldabókmenntum, eddukvæðum sérstaklega.
Oleksandr Goluzubov, prófessor við Tækniháskólann í Kharkiv í Úkraínu, til að rannsaka háð og kímni í miðaldabókmenntum.
Michalis Gennaris, rithöfundi í Aþenu, til að vinna að skáldsögu sem mun byggjast á Vatnsdæla sögu.