Skip to main content

Fréttir

Styrkir Snorra Sturlusonar veittir í tuttugasta og fjórða sinn

Í tilefni af 750. ártíð Snorra Sturlusonar, 23. september 1991, ákvað ríkisstjórn Íslands að efna til styrkja sem kenndir yrðu við nafn hans. Samkvæmt reglum um styrkina, sem gefnar voru út 1992, skulu þeir árlega boðnir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum til að dveljast á Íslandi í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi. Styrkirnir skulu veittir í þrjá mánuði hið minnsta og miðast við greiðslu á ferðakostnaði styrkþega og dvalarkostnaði innanlands.

Styrkir Snorra Sturlusonar fyrir árið 2016 voru auglýstir í júlí sl. með umsóknarfresti til 1. nóvember. Sjötíu og sjö umsóknir bárust frá þrjátíu  og þremur löndum.

Í úthlutunarnefnd styrkjanna eiga sæti Úlfar Bragason, rannsóknarprófessor, formaður, Ásdís Egilsdóttir, prófessor, og Pétur Gunnarsson, rithöfundur. Nefndin hefur nú lokið úthlutun.

Þau sem hljóta styrki árið 2016, til þriggja mánaða dvalar hvert, eru:

Kathleen Forni, prófessor í enskum miðaldabókmenntum við Loyolaháskólann í Maryland, Bandaríkjunum, til að vinna að bók um Bjólfskviðu.

Leszek Gardela, lektor í fornleifa- og safnafræði við Rzeszówháskólann í Póllandi, til að stunda rannsóknir á kvenhetjum í íslenskum fornbókmenntum.

Lena Rohrbach, prófessor í norrænum fræðum við Humboldtháskóla í Berlín, til að fást við rannsóknir á Jónsbókarhandritum.

 

Snorri Sturluson. Mynd: Kristín M. Jóhannsdóttir.