Skip to main content

Fréttir

Styrkir Snorra Sturlusonar veittir í sautjánda sinn

Í tilefni af 750. ártíð Snorra Sturlusonar, 23. september 1991, ákvað ríkisstjórn Íslands að efna til styrkja sem kenndir yrðu við nafn hans. Samkvæmt reglum um styrkina, sem gefnar voru út 1992, skulu þeir árlega boðnir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum til að dveljast á Íslandi í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi. Styrkirnir skulu veittir í þrjá mánuði hið minnsta og miðast við greiðslu á ferðakostnaði styrkþega og dvalarkostnaði innanlands.

Styrkir Snorra Sturlusonar fyrir árið 2009 voru auglýstir í júlí sl. með umsóknarfresti til 1. nóvember. Tuttugu og átta umsóknir bárust frá átján löndum.

Í úthlutunarnefnd styrkjanna eiga sæti Úlfar Bragason, rannsóknarprófessor, formaður, Ásdís Egilsdóttir, dósent, og Ingibjörg Haraldsdóttir, rithöfundur. Nefndin hefur nú lokið úthlutun.

Þau sem hljóta styrki árið 2009, til þriggja mánaða hvort, eru:

  • Dr. Emily Lethbridge, fræðimaður í Cambridge, Bretlandi, til að fást við varðveislu fjögurra fornsagna sem handritið AM 556a 4to, svokölluð Eggertsbók, hefur að geyma.
  • Dr. Leszek Pawel Slupecki, prófessor, Rzeszowháskóla, Póllandi, til að þýða Snorra-Eddu á pólsku, skrifa inngang að þýðingunni og skýringar við hana.