Skip to main content

Fréttir

Styrkir Snorra Sturlusonar veittir í nítjánda sinn

Í tilefni af 750. ártíð Snorra Sturlusonar, 23. september 1991, ákvað ríkisstjórn Íslands að efna til styrkja sem kenndir yrðu við nafn hans. Samkvæmt reglum um styrkina, sem gefnar voru út 1992, skulu þeir árlega boðnir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum til að dveljast á Íslandi í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi. Styrkirnir skulu veittir í þrjá mánuði hið minnsta og miðast við greiðslu á ferðakostnaði styrkþega og dvalarkostnaði innanlands.

Styrkir Snorra Sturlusonar fyrir árið 2011 voru auglýstir í júlí sl. með umsóknarfresti til 1. nóvember. Eitt hundrað og ellefu umsóknir bárust frá fjörutíu og fjórum löndum.

Í úthlutunarnefnd styrkjanna eiga sæti Úlfar Bragason, rannsóknarprófessor, formaður, Ásdís Egilsdóttir, prófessor, og Ingibjörg Haraldsdóttir, rithöfundur. Nefndin hefur nú lokið úthlutun.

Þau sem hljóta styrki árið 2011, til þriggja mánaða hvert, eru:

Daisy Neijmann, kennari við University College London, til að rannsaka íslenskar bókmenntir sem fást við seinni heimsstyrjöldina og hernámið hér á landi.

Seiichi Suzuki, prófessor við Kansai Gaidai háskóla í Japan, til að fást við rannsóknir á fornnorrænum bragarháttum.

Giorgio Vasta, rithöfundur í Torino á Ítalíu, til að vinna að skáldsögu sem að hluta mun gerast hér á landi.