Skip to main content

Fréttir

Styrkir Snorra Sturlusonar veittir í fimmtánda sinn

Í tilefni af 750. ártíð Snorra Sturlusonar, 23. september 1991, ákvað ríkisstjórn Íslands að efna til styrkja sem kenndir yrðu við nafn hans. Samkvæmt reglum um styrkina, sem gefnar voru út 1992, skulu þeir árlega boðnir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum til að dveljast á Íslandi í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi. Styrkirnir skulu veittir í þrjá mánuði hið minnsta og miðast við greiðslu á ferðakostnaði styrkþega og dvalarkostnaði innanlands.

Styrkir Snorra Sturlusonar fyrir árið 2007 voru auglýstir í júlí sl. með umsóknarfresti til 1. nóvember. Tuttugu og níu umsóknir bárust frá fimmtán löndum.

Í úthlutunarnefnd styrkjanna eiga sæti Úlfar Bragason, rannsóknarprófessor, formaður, Ásdís Egilsdóttir, dósent, og Ingibjörg Haraldsdóttir, rithöfundur. Nefndin hefur nú lokið úthlutun.

Þau sem hljóta styrki árið 2007, til þriggja mánaða hvort, eru:

François-Xavier Dillmann, prófessor við École pratique des Hautes Études (Sorbonne) í París, til að vinna að þýðingu á Ólafs sögu ins helga á frönsku.

Dr. Patricia Pires Boulhosa, fræðimaður í Cambridge á Englandi, til að þýða Völuspá á portúgölsku og vinna að undirbúningi kynningar á íslenskum fornbókmenntum í Brasilíu.