Skip to main content

Fréttir

Styrkir Snorra Sturlusonar 2019

Í tilefni af 750. ártíð Snorra Sturlusonar, 23. september 1991, ákvað ríkisstjórn Íslands að efna til styrkja sem kenndir yrðu við nafn hans. Samkvæmt reglum um styrkina, sem gefnar voru út 1992, skulu þeir árlega boðnir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum til að dveljast á Íslandi í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi. Styrkirnir skulu veittir í þrjá mánuði hið minnsta og miðast við greiðslu á ferðakostnaði styrkþega og dvalarkostnaði innanlands.

          Styrkir Snorra Sturlusonar fyrir árið 2019 voru auglýstir í júlí sl. með umsóknarfresti til 1. nóvember. Fimmtíu og níu umsóknir bárust frá þrjátíu löndum.

          Í úthlutunarnefnd styrkjanna eiga sæti Úlfar Bragason rannsóknarprófessor, formaður, Ásdís Egilsdóttir prófessor emeritus, og Pétur Gunnarsson rithöfundur. Nefndin hefur nú lokið úthlutun.

 

Þær sem hljóta styrki árið 2019, til þriggja mánaða dvalar hver, eru:

Dr. Sarah Baccianti, Queen’s University Belfast, til að rannsaka fræði í miðaldahandritum;

Dr. Lena E. Norrman, University of Minnesota, til að rannsaka munnlega geymd kvenna, einkum í sambandi við fornaldarsögur og Sturlungu;

Dr. Margaret Willson, University of Washington, til að fást við sögu Þuríðar Einarsdóttur formanns.

Sett inn 12.12.2018