Skip to main content

Fréttir

Skráning örnefna í Borgarfirði

Snorralaug í Reykholti. Mynd: Kristín M. Jóhannsdóttir.

 

Fyrirlesturinn Skráning örnefna í Borgarfirði verður haldinn þriðjudaginn 6. nóvember kl. 20.30 og er á vegum Snorrastofu. Fyrirlesari er Ragnhildur Helga Jónsdóttir umhverfislandfræðingur. Fyrirlesturinn er helgaður því merkilega starfi sem unnið hefur verið síðustu 20 árin við skráningu á örnefnum í Borgarfirði. Ekki hefur verið látið nægja að leita eftir þekkingu á þeim til skráningar heldur hafa þau einnig verið færð inn á kort í örnefnasjá Landmælinga Íslands og eru þannig tiltæk öllum sem áhuga hafa. Ætla má að vinnan verði lykill að margvíslegu þróunarstarfi við leiðsögn ferðamanna um svæðið og miðlun menningarverðmæta þess, sögu og sögnum. Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum hefur farið  fyrir verkefninu en það hefur einnig verið unnið sem BS-verkefni í landafræði við Háskóla Íslands. Reynslan hefur sýnt að það er hver að verða síðastur að ná til heimildarmanna sem þekkja örnefnin og staðsetningu þeirra. Verkefnið hlaut Borgfirsku menningarverðlaunin á nýliðnu hausti úr Minningarsjóði Guðmundar Böðvarssonar og Ingibjargar Sigurðardóttur frá Kirkjubóli.

Ragnhildur Helga Jónsdóttir er umhverfislandfræðingur að mennt með meistarapróf frá Háskóla Íslands. Hún starfar sem sérfræðingur í sögu landnýtingar á Íslandi. Snorrastofa, Landbúnaðarsafn Íslands og Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum standa að fyrirlestrinum en Menningarráð Vesturlands styrkir viðburðinn. Hann hefst kl. 20.30 og að venju er boðið til kaffiveitinga og umræðna að honum loknum.  Aðgangseyrir er kr. 500.