Skip to main content

Fréttir

Risamálheildin stækkuð og uppfærð

Merki CLARIN

Risamálheildin hefur nú verið stækkuð með því að bæta við hana gögnum frá árunum 2022 og 2023. Þessi viðbótargögn má sækja á varðveislusvæði CLARIN en einnig eru hægt að leita í þeim á málheildarvef Árnastofnunar. Auk þess hefur málheildarvefurinn verið uppfærður og ýmsir smávægilegir gallar lagaðir.

Fyrsta útgáfa Risamálheildarinnar kom út árið 2018 og litu nýjar útgáfur dagsins ljós á hverju ári fyrstu fimm árin. Í hvert sinn var nýjum gögnum bætt við um leið og mörkunaraðferðir voru bættar. Fyrsta útgáfan innihélt um 1.259 milljónir lesmálsorða en sú frá árinu 2022 um 2.439 milljónir lesmálsorða. Ekki þótti ástæða til að gefa málheildina út í heild sinni að þessu sinni enda hafa mörkunaraðferðir og vinnsla texta ekki breyst síðan síðasta útgáfa kom úr. Því var sú leið farin að gefa út viðbót með gögnum áranna 2022 og 2023. Viðbótin inniheldur um 162 milljónir orða. Á málheildarvefnum gefst fólki kostur á að leita í nýrri útgáfu Risamálheildarinnar þar sem nýju gögnunum hefur verið bætt við útgáfuna frá 2022.