Skip to main content

Fréttir

Rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða fimmtudag klukkan 20


Rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða í húsi Sögufélags við Fischersund nk. fimmtudag klukkan 20.

Fyrirlesari er dr. Ragnheiður Kristjánsdóttir, aðjúnkt í sagnfræði við Háskóla Íslands. Í erindi sínu kynnir hún afmarkaða þætti doktorsritgerðar sinnar Nýtt fólk. Þjóðerni og íslensk verkalýðsstjórnmál 1901–1944. Hún lýsir því nánar á þennan veg:

Segja má að á árunum milli stríða hafi stjórnmálabarátta verkalýðsflokkanna tveggja, Alþýðuflokks og Kommúnistaflokks miðað að því að berjast fyrir viðurkenningu á því að verkafólk væri fullgildir íslenskir borgarar. Í því fólst meðal annars tilraun til að endurmóta íslenska þjóðernisstefnu. Báðir flokkar réðust gegn þeim þáttum hennar sem samrýmdust illa sósíalískri stjórnmálaorðræðu, endursögðu þjóðarsöguna og skilgreindu upp á nýtt og á sínum forsendum grunnþætti íslenskrar þjóðernissjálfsmyndar. Engu að síður snerti þjóðernisstefna stórnmálastarf flokkanna tveggja með mjög ólíkum hætti.

Færa má rök fyrir því að þjóðernisstefna hafi átti sinn þátt í að tryggja kommúnista- og síðar sósíalistahreyfinguna í sessi. Áhrifin á Alþýðuflokkinn hafi hins vegar verið þveröfug. Íslensk þjóðernisstefna hafi hindrað vöxt hans. Höfundur ætlar að gera grein fyrir því hvernig hún kemst að ofangreindri niðurstöðu.

Allir velkomnir.