Skip to main content

Fréttir

Ráðherra Færeyja í heimsókn

Mennta- og menningarmálaráðherra Færeyja, Helena Dam á Neystabø, kom 4. júní til Íslands í heimsókn. Ráðherrann þingaði í mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar sem greinilega kom fram mikill samstarfsvilji Færeyinga í málefnum vísinda, skóla og menningar. Guðrún Nordal forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum tók á móti ráðherranum laugardaginn 5. júní og kynnti honum starfsemi stofnunarinnar.