Skip to main content

Fréttir

Orðasafn í líffærafræði – Íðorðarit 3

Orðasafn í líffærafræði. Íðorðarit Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, 3. Kápan.

Orðasafn í líffærafræði er komið út og er það þriðja ritið í ritröðinni Íðorðarit Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Í orðasafninu eru íslensk, ensk og latnesk heiti um stoðkerfi líkamans, þ.e. bein, liðamót og vöðva, og íslenskar skilgreiningar eða lýsingar allra hugtaka.

Orðasafnið skiptist í tvo hluta. Í þeim fyrri er hugtökum raðað eftir flokkum og hinn síðari hefur að geyma  ensk-íslenskan og íslensk-enskan orðalista sem eru stafrófsraðaðir. Orðasafnið er ætlað þeim sem sérstakan áhuga hafa á líffærafræði mannsins, s.s. nemenda, kennara og starfsmanna heilbrigðisþjónustu.

Ritstjóri orðasafnsins er Jóhann Heiðar Jóhannsson og í ritstjórn með honum voru Hannes Petersen og Ágústa Þorbergsdóttir.

Orðasafn í líffærafræði kostar 2.500 kr. og er til sölu í Bóksölu stúdenta. Háskólaútgáfan  sér um dreifingu.

Orðasafnið er einnig á heimasíðu orðabankans (www.ordabanki.hi.is) sem pdf-skjal.