Árnastofnun hefur nú flutt öll handrit, sem hún hefur til varðveislu, í nýtt öryggisrými í Eddu, Arngrímsgötu 5. Um er að ræða um 2000 handrit, 1345 fornbréf og um 6000 fornbréfauppskriftir. Fáein handrit voru flutt í nóvember sl. vegna sýningarinnar Heimur í orðum sem var opnuð á degi íslenskrar tungu í Eddu og nú í vikunni voru öll önnur handrit og fornbréf flutt í Eddu. Flutningurinn gekk hratt og vel fyrir sig og voru handritin flutt yfir Suðurgötu með aðstoð lögreglu.
Handritastofnun Íslands eignaðist nokkur handrit á sjöunda áratug síðustu aldar þegar hún var til húsa í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Árið 1970 flutti stofnunin í nýtt hús við Suðurgötu sem fékk nafnið Árnagarður. Fyrstu handritin sem voru flutt frá Kaupmannahöfn samkvæmt samningi milli Íslands og Danmerkur um skiptingu handritasafns Árna Magnússonar komu árið 1971 og var stofnunin þá kennd við Árna. Einnig komu um 140 handrit úr Konungsbókhlöðu í Kaupmannahöfn. Flutningur handritanna frá Kaupmannahöfn tók 26 ár. Í Árnagarði voru handritin geymd við ágætar aðstæður en nú er þeirri sögu lokið. Þegar Árnastofnun sameinaðist fjórum öðrum stofnununum árið 2006 var ákveðið að byggja nýtt hús fyrir þessa nýju stofnun með góðri aðstöðu til að sýna handritin en einnig til að varðveita þau við bestu aðstæður. Handritasafn Árna Magnússonar var sett á skrá UNESCO yfir minni heimsins árið 2009.