Ráðstefna í Hannesarholti hinn 27. apríl 2019, kl. 10:00-15:15, um fyrirlestra Sigurðar Nordals Einlyndi og marglyndi í Bárubúð 1918-1919.
Ráðstefnan Öld einlyndis og marglyndis er haldin í þeirri trú að hugtök Sigurðar Nordals einlyndi og marglyndi, og flókið samspil þeirra, geri okkur kleift að hugsa upp á nýtt um áleitnustu deilumál í heimspekilegri sálfræði og siðfræði samtímans en einnig til að skilja hræringar í bókmenntum og menningarlífi Íslands á tuttugustu öld. Sjálfur lítur Nordal á fyrirlestra sína sem framlag til (heimspekilegrar) sálfræði og þess sem hann kallar „lífernislist“. Fyrirlestrarnir í Bárubúð voru ákaflega vel sóttir á sínum tíma en Sigurður hafði heyjað sér efni í þá á árum fyrri heimstyrjaldarinnar bæði í Þýskalandi og á Bretlandi. Einlynd og marglyndi er heimspekilegur fjársjóður sem á sér engan sinn líkan á Íslandi.
Á meðal þeirra spurninga sem glímt verður við á ráðstefnunni má nefna:
- Hvers konar hugtök eru hugtökin einlyndi og marglyndi?
- Hefur maðurinn eitt heilsteypt sjálf eða er hann ekkert annað en samansafn ólíkra sálarkrafta eða sjálfa?
- Felst hamingjan í þroska einnar heilsteyptrar persónu og siðferðið í heilindum sjálfsins? Eða er mannleg farsæld eins margbreytileg og siðferðið jafn marglitt og sjálf mannsins eru mörg?
- Á hvaða mælikvarða metum við árangur þeirrar heimspeki sem Nordal mótar í fyrirlestrum sínum?
- Hvernig nýtast hugtökin einlyndi og marglyndi við mótun persónulegrar lífsstefnu?
- Hvernig sér Nordal tengsl bókmennta og heimspeki, lista og siðspeki?
- Hvaða ljósi varpa fyrirlestrar Nordals á tengsl hans við sálarrannsóknir á Íslandi?
- Hver voru áhrif fyrirlestra Nordals á íslenska bókmenntasögu?
Dagskrá:
10:00-10:30 Salvör Nordal, umboðsmaður barna, „Að vera einlyndur eða marglyndur.“
10:30-11:00 Logi Gunnarsson, prófessor í heimspeki við Háskólann í Potsdam, „Einlyndi og marglyndi: heimspekileg lykilhugtök?“
11:00-11:15 Kaffihlé
11:15-11:45 Róbert H. Haraldsson, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands, „Ríki andans og höll hugans: Mælikvarði Nordals á fyrirlestra sína um einlyndi og marglyndi.“
11:45- 12:15 Ágúst Hjörtur Ingþórsson, sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs Rannís, „Að lifa með einlyndi og marglyndi.“
12:15-13:00 Hádegishlé
13:00-13:30 Jón Karl Helgason, prófessor í íslensku sem annað mál við Háskóla Íslands, „Uppgjörið við natúralismann: Fyrirlestrar Nordals og íslensk bókmenntasaga.“
13:30-14:00 Benedikt Hjartarson, prófessor í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands, „Af ónumdum útjöðrum sálarinnar: Sigurður Nordal og sálarrannsóknir á Íslandi við upphaf 20. aldar.“
14.00-14:15 Kaffihlé
14:15-14:45 Jón Á. Kalmansson, aðjunkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, „Nordal andspænis undrinu.“
14:45-15:15 Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, „Menntahugsjón Nordals og áskoranir samtímans.“