Skip to main content

Fréttir

Nýir forsetar fræðasviða Háskóla Íslands

Fimm nýir forsetar hafa verið ráðnir til að stjórna fræðasviðum Háskóla Íslands. Forseti Hugvísindasviðs verður Ástráður Eysteinsson, prófessor í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands, forseti menntavísindasviðs verður Jón Torfi Jónasson, prófessor í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands, forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs verður Kristín Vala Ragnarsdóttir, prófessor jarðvísindum við háskólann í Bristol á Englandi, forseti félagsvísindasviðs verður Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og forseti heilbrigðisvísindasviðs verður Sigurður Guðmundsson landlæknir.