Út er komið ráðstefnurit með 44 greinum sem byggjast á fyrirlestrum sem haldnir voru á 14. norrænu nafnaráðstefnunni sem haldin var í Borgarnesi í ágúst 2007. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Nafnfræðifélagið skipulögðu ráðstefnuna og stofnunin gefur ritið út í samvinnu við NORNA-forlagið í Uppsölum.
Í ritstjórn sátu: Guðrún Kvaran, Hallgrímur J. Ámundason, Jónína Hafsteinsdóttir og Svavar Sigmundsson. Bessi Aðalsteinsson annaðist umbrot og Leturprent prentaði. Swedish Science Press sér um dreifingu erlendis. Ráðstefnuritið er 538 bls. og fæst í Bóksölu stúdenta. Það kostar kr. 2.600,- fram til 1. apríl, eftir það kr. 3.200,-