Skip to main content

Fréttir

Nefningar - Afmælisrit Svavars Sigmundssonar

Afmælisrit Svavars Sigmundssonar, Nefningar, er komið út. Ritinu verður dreift til áskrifenda á næstu dögum.

Í tilefni af sjötugsafmæli Svavars Sigmundssonar 7. september 2009 ákvað Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum að gefa út afmælisrit honum til heiðurs með úrvali greina sem hann hefur skrifað í ýmis tímarit, ráðstefnurit, afmælisrit og aðrar bækur.

Í ritinu eru 35 greinar á einum 6 tungumálum (íslensku, færeysku, dönsku, sænsku, ensku og þýsku). Greinarnar fjalla einkum um örnefni og nafnfræði en einnig aðrar greinar íslensks máls og málfræði. Í ritinu er einnig ítarleg nafnaskrá við greinarnar og ritaskrá Svavars frá 1962 til dagsins í dag.

Í ritnefnd sátu Ari Páll Kristinsson, Guðrún Kvaran og Hallgrímur J. Ámundason.