Skip to main content

Fréttir

Mímisþing 28. mars 2009


Mímisþing, málþing íslenskunema, verður haldið í samstarfi við ReykjavíkurAkademíuna laugardaginn 28. mars 2009 í fundarsal hennar á 4. hæð í JL-húsinu við Hringbraut.

Skipulögð dagskrá stendur frá 12:00 til 17:30 með tveimur hléum þar sem boðið verður upp á léttar veitingar og kaffi. Eftir að dagskránni lýkur verða drykkir í boði og tilheyrandi kátína.

Fundarstjóri er Gyða Erlingsdóttir.

Fyrirlestrarnir eru þessir:

12:00 – 12:30
Þorsteinn Surmeli. „Því ég er orðinn ávísun / og þú kvittun“ – Náttúra og ónáttúra í ljóðum Þorsteins frá Hamri

12:30 – 13:00
Margrét Samúelsdóttir. Leit í veruleikafirringu – Veruleikaleit, sjálfsleit, makaleit

13:00 – 13:30
Sigurrós Eiðsdóttir. Kaldhæðni og ákveðni skoðuð í Bakþankatextum Þórgunnar Oddsdóttur

13:30 – 14:00
Hlé – kaffi

14:00 – 14:30
Kristín Lena Þorvaldsdóttir. Að koma auga á málfræðilegar formdeildir – Um hlutverk augna í íslenska táknmálinu

14:30 – 15:00
Magnús Sigurðsson. „Í leiðindum“ – Um Evu Hjálmarsdóttur skáld

15:00 – 15:30
Csaba Oppelt. Þýðingar Steingríms Thorsteinssonar á kvæðum Alexanders Petöfi

15:30 – 16:00
Hlé – kaffi

16:00 – 16:30
Einar Freyr Sigurðsson og Hlíf Árnadóttir. Nefnifallssamræmi og þolmynd

16:30 – 17:00
Sigurður Jón Ólafsson. Erótík í fornaldar- og riddarasögum

17:00 – 17:30
Þorleifur Hauksson. „Grýluvandinn leystur“ – Um Sverris sögu