Skip to main content

Fréttir

Margarítur hristar Margréti - nýtt frá Mettusjóði

Út er komið ritið Margarítur, hristar Margréti Eggertsdóttur fimmtugri 25. nóvember 2010. Í ritinu eru yfir 30 stuttar en bráðskemmtilegar greinar Margréti til heiðurs.

Útgefandi er Menningar- og minngarsjóður Mette Magnussen sem starfsmenn Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hafa umsjón með og gefa út til gamans fjölrituð smárit til heiðurs samstarfsmönnum sínum og öðrum kollegum er þeir eiga merkisafmæli.

Umsjón með útgáfunni höfðu Guðvarður Már Gunnlaugsson, Svanhildur Óskarsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir.