Skip to main content

Fréttir

Málþing um kristna trú

Neskirkja.

 

Málþing um kristna trú sem forsenda akademískrar ritskýringar Nýja testamentisins verður í Safnaðarheimili Neskirkju við Hagatorg í Reykjavík laugardaginn 27. október kl. 12.30-16. Meðal fyrirlesara er Margrét Eggertsdóttir rannsóknarprófessor á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Hún flytur fyrirlestur sem nefnist Hin fjórfalda túlkunarhefð Biblíunnar sem lykill að kveðskap á sautjándu öld.