Skip to main content

Fréttir

Jean-Jacques Rousseau ― þriggja alda minning

Félag um átjándu aldar fræði heldur málþing undir yfirskriftinni Jean-Jacques Rousseau – þriggja alda minning laugardaginn 11. febrúar nk. Málþingið er haldið í Þjóðarbókhlöðu, fyrirlestrasal á 2. hæð, og hefst kl. 13.30 og lýkur um kl. 16.30.

Eftirtalin fjögur erindi verða flutt:

  • Kosið fyrir alla: Hugtakið um almannaviljann greint og gagnrýnt
    Dr. Björn Þorsteinsson, nýdoktor við Heimspekistofnun Háskóla Íslands.
  • Uppeldishugmyndir Rousseaus í kynjafræðilegu ljósi
    Guðný Guðbjörnsdóttir, prófessor í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands

Kaffihlé

  • „Blossandi viti“? Rousseau, réttlætið og arfleifðin
    Dr. Henry Alexander Henrysson, Heimspekistofnun Háskóla Íslands
  • Rousseau í íslenskri uppeldissögu: Stiklur 1780–1940
    Loftur Guttormsson, prófessor emeritus í sagnfræði við Háskóla Íslands


Flutningur hvers erindis tekur um 20 mínútur. Um 10 mínútur gefast til fyrirspurna og umræðna að loknu hverju erindi.

Fundarstjóri verður Kristín Bragadóttir, doktorsnemi í sagnfræði.

Útdrættir úr erindum liggja frammi á málþinginu. Þeir verða síðar aðgengilegir á heimasíðu félagsins: http://fraedi.is/18.oldin/

Veitingar verða á boðstólum í hléi fyrir framan fyrirlestrasalinn á 2. hæð. Allir velkomnir.