Skip to main content

Fréttir

Íslenskukennsla við Sorbonneháskóla

Sorbonneháskóli í París.

 

Umsóknarfrestur um stöðuna hefur verið lengdur til 2. apríl 2013

Staða íslenskukennara við Sorbonneháskóla í París er laus til umsóknar. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. september 2013. Ráðning er tímabundin til þriggja ára með möguleika á endurráðningu til jafnlangs tíma. Krafist er M.A. prófs í íslensku. Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið kennararéttindanámi og hafi reynslu af því að kenna íslensku sem annað eða erlent mál. Umsækjendur þurfa að geta kennt íslenskt mál og bókmenntir og fjallað um íslenskt samfélag. Æskilegt er að þeir hafi búið á Íslandi undanfarin ár. Kunnátta í frönsku er nauðsynleg. Mögulegt er að stunda framhaldsnám við skólann með kennslu.

Umsóknir, sem greini frá námi og störfum umsækjenda, ásamt skýrslu um ritsmíðar og rannsóknir, skulu sendar til Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, stofu Sigurðar Nordals, pósthólf 1220, 121 Reykjavík, fyrir 15. mars 2013.

Nánari upplýsingar veitir Úlfar Bragason rannsóknarprófessor í síma 562 6050.

Reykjavík 25. febrúar 2013.