Skip to main content

Fréttir

Íslensk málhreinsun. Sögulegt yfirlit eftir Kjartan G. Ottósson

Bókin „Íslensk málhreinsun. Sögulegt yfirlit“ eftir Kjartan G. Ottósson (1990) hefur um langt skeið verið ófáanleg. Nú er ný prentun á leiðinni á vegum Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Hægt er að tryggja sér eintak á tilboðsverði, 2.900 kr., með því að senda tölvupóst á kari [hjá] hi.is fyrir 16. febrúar nk. Almennt útsöluverð bókarinnar verður 3.900 kr. Í tilboðsverðinu er ekki innifalinn sendingarkostnaður fyrir þá sem ekki hyggjast sækja bókina sjálfir á stofnunina.