Hljóðupptaka í tveimur hlutum frá hátíðarmálþingi sem haldið var á afmælisdegi Guðmundar Magnússonar (Jóns Trausta) í Iðnó 12. febrúar 2023. Málþingið var skipulagt af Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands, Rithöfundasambandi Íslands og Árnastofnun.
Fyrri hluti
0:03:03 Guðrún Nordal forstöðumaður Árnastofnunar: Höfundur verður til: frá Guðmundi til Jóns Trausta
0:27:37 Hrafnkell Lárusson, sérfræðingur við Þjóðskjalasafn Íslands: Seyðfirski aldamótabærinn og Austurland í tveimur skáldverkum
0:51:02 Sveinn Yngvi Egilsson, prófessor við Háskóla Íslands: Íslandsvísur og viðtökur þeirra
1:15:00 Hlynur Helgason, dósent við Háskóla Íslands: Birtingarmynd lands
Seinni hluti
0:01:01 Jón Yngvi Jóhannsson, lektor við Háskóla Íslands: „Þá stækkar Ísland inn á við“. Hálendið í Heiðarbýli Jóns Trausta
0:21:38 Guðrún Steinþórsdóttir, sjálfstætt starfandi fræðimaður: „Hann elskar mig. – Hann elskar mig ekki.“ Um ástir og örlög í sagnabálki Jóns Trausta um Höllu og heiðarbýlið
0:42:51 Atli Antonsson, doktorsnemi við Háskóla Íslands: Sögur Jóns Trausta frá Skaftáreldi og Eldklerkurinn sem skáldsagnapersóna
1:12:24 Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur: Draumalandið