Skip to main content

Fréttir

Hátíðardagskrá Mímis og Mjólkursamsölunnar á degi íslenskrar tungu


Mímir félag stúdenta í íslenskum fræðum heldur dag íslenskrar tungu hátíðlegan með veglegri dagskrá þann 16. nóvember næstkomandi. Hátíðin fer fram í stofu 201 í Árnagarði við Suðurgötu milli kl. 17 og 19. Heiðursgestur er Helga Kress. Fyrirlestrar, skemmtiatriði og léttar veitingar. Dagskráin er í samstarfi við Mjólkursamsöluna. Allir eru velkomnir.