Skip to main content

Fréttir

Hallgrímur Pétursson; Ljóðmæli 4 komin út

Fjórða bindið í fræðilegri heildarútgáfu á verkum Hallgríms Péturssonar (1614–1674), Ljóðmæli 4, er komið út hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Það hefur að geyma andlegan kveðskap sem tengist hringrás náttúrunnar, tímaskiptum, svo sem dægra- og árstíðabreytingum, bæði lengri sálma og stök vers, alls 39 talsins. Hér eru morgun- og kvöldsálmar, sálmar við upphaf vetrar og sumars; sálmar sem ætlaðir voru til kennslu og uppfræðslu, t.d. við fermingarundirbúning, svo og tveir borðsálmar, annar ætlaður til söngs fyrir máltíð en hinn eftir máltíð. Texti hvers kvæðis er prentaður stafréttur eftir aðalhandriti en orðamunur úr öðrum handritum birtur neðanmáls. Gerð er rækileg grein fyrir varðveislu hvers kvæðis og auk þess er handritunum lýst í sérstakri skrá. Margrét Eggertsdóttir, Svanhildur Óskarsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir önnuðust útgáfuna.

 

Verk Hallgríms hafa ekki áður verið gefin út í heild á fræðilegan hátt en í því felst að allir varðveittir textar eignaðir skáldinu eru teknir til athugunar. Vegna vinsælda og útbreiðslu verka Hallgríms er útgáfa þessi óvenju umfangsmikil. Er ætlunin að hún verði í fjórum hlutum: ljóðmæli, sálmaflokkar, rímur og laust mál, og verða fimm bindi í fyrsta hluta. Fyrsta bindi útgáfunnar kom út árið 2000, annað bindið árið 2002 og þriðja bindið árið 2005.

Verð: 4.065 kr. Háskólaútgáfan annaðist prentþjónustu og dreifir ritinu.