Skip to main content

Fréttir

Guðrún Nordal endurráðin

Guðrún Nordal. Ljósmyndari: Jóhanna Ólafsdóttir.

 

Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, hefur verið endurráðin við stofnunina til næstu fimm ára en hún hefur gegnt stöðu forstöðumanns frá árinu 2009. Guðrún lauk doktorsprófi frá Háskólanum í Oxford 1988 og er prófessor í bókmenntum fyrri alda við Háskóla Íslands.