Skip to main content

Fréttir

Gripla á heimasíðuna


Greinar úr tveimur nýjustu árgöngum Griplu má nú lesa á heimasíðu stofnunarinnar. Gripla er ritrýnt tímarit sem kemur út einu sinni á ári. Það er alþjóðlegur vettvangur fyrir rannsóknir á sviði íslenskra og norrænna fræða, einkum handrita- og textafræða, bókmennta og þjóðfræða. Greinar í Griplu eru að jafnaði á íslensku en einnig eru birtar greinar á öðrum norrænum málum, ensku, þýsku og frönsku.