Skip to main content

Fréttir

Greinakall − Orð og tunga 23

Frestur til að skila greinahandritum í 23. hefti Orðs og tungu (2021) er til 1. september 2020. Með því að senda inn handrit lýsir væntanlegur höfundur sig samþykkan því fyrirkomulagi að greinin verði birt samtímis á prenti og í rafrænni gerð. 

Orð og tunga er ritrýnt tímarit sem Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum gefur út árlega. Birtar eru fræðilegar greinar, á íslensku og ensku, sem lúta að máli og málfræði en sérstök áhersla er lögð á greinar um orðfræði, orðabókafræði, nafnfræði, íðorðafræði og málræktarfræði. Stefnt er að því að senda höfundum svar varðandi birtingu í byrjun nóvember.

Að þessu sinni verður sjónum einkum beint að mállýskum og öðrum málbrigðum í íslensku og öðrum tungumálum. Fræðimenn sem héldu erindi á norrænu ráðstefnunni um mállýskur og málbrigði í ágúst 2018 (Den 11 nordiska dialektologkonferensen, https://conference.hi.is/dialektolog2018/) eru sérstaklega hvattir til að senda inn greinar sem byggjast á þeim. Eins og áður er þó einnig tekið við greinum sem falla undir önnur áherslusvið tímaritsins.

Upplýsingar um skil á handritum, lengd, frágang o.s.frv. er að finna á vefsíðu tímaritsins (ordogtunga.arnastofnun.is). Þar má einnig finna efnisyfirlit og útdrætti eldri árganga. Vinsamlegast hafið samband við Helgu Hilmisdóttur ritstjóra ef fleiri spurningar vakna.

English