Ritstjórn tímaritsins Griplu, sem gefið er út á vegum Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, langar að minna á skilafrestinn á greinum sem er til 1. apríl fyrir þær greinar sem verða birtar í 2019-heftinu. Greinar má senda á gripla@arnastofnun.is
Gripla er ritrýnt tímarit sem kemur út í desember á hverju ári. Tímaritið er alþjóðlegur vettvangur fyrir rannsóknir á sviði íslenskra og norrænna fræða, einkum handrita- og textafræða, bókmennta og þjóðfræða. Birtar eru útgáfur á stuttum textum, greinar og stuttar fræðilegar athugasemdir (sem eru ekki ritrýndar). Ritdómar um bækur eru ekki birtir í Griplu og heldur ekki þýðingar á miðaldatextum nema þær fylgi útgáfu textans á frummáli. Greinar skulu að jafnaði skrifaðar á íslensku en einnig eru birtar greinar á öðrum norrænum málum, ensku, þýsku og frönsku.
Gripla hefur verið skráð í Arts and Humanities Citation Index gagnagrunninn sem tekinn er saman hjá Thomson Reuters og er metin til hæstu stiga (15) innan matskerfis Háskóla Íslands. Aðsendar greinar verða sendar í ritrýni og miðað er við höfundum verði svarað í júníbyrjun.
Ritstjórar Griplu eru Rósa Þorsteinsdóttir og Emily Lethbridge.
Nánari upplýsingar um tímaritið svo og leiðbeiningar um frágang greina má finna hér: http://www.arnastofnun.is/page/gripla