,,Stofnunin leggur ríka áherslu á að gögn stofnunarinnar geti orðið aflvaki í nýsköpun á sviði menningarmiðlunar, lista, menningartengdrar ferðaþjónustu og upplýsingatækni"
segir Guðrún Nordal forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum í fyrsta rafræna fréttabréfi stofnunarinnar sem var sent út í gær. Fréttabréfið má lesa á vefnum.
Þeir sem vilja fá fréttabréf stofnunarinnar mánaðarlega í tölvupósti geta skráð sig á vefnum eða sent tölvupóst til rosasve@hi.is.