Skip to main content

Fréttir

Gata í Kaupmannahöfn nefnd eftir Árna Magnússyni

Það telst til tíðinda að nýlega hefur verið ákveðið að nefna nýja götu í Kaupmannahöfn eftir Árna Magnússyni - Arni Magnussons gade. Hún er á svæði suðvestur af aðaljárnbrautarstöðinni þar sem mikil endurskipulagning og endurbyggingar eru að eiga sér stað. Í næsta nágrenni eru m.a. að rísa nýjar byggingar sem munu hýsa danska þjóðskjalasafnið, Rigsarkivet.

 Yfirlitskort af svæðinu kringum götu Árna Magnússonar.