Stofnunin gefur út rafrænt fréttabréf til að miðla upplýsingum um starf stofnunarinnar, nýjar útgáfur, fyrirlestra, rannsóknarverkefni, viðburði og fleira. Annað tölublað ársins 2014 hefur verið sent þeim sem stofnunin hefur á netfangaskrá sinni. Aðrir geta lesið fréttabréfið á vef stofnunarinnar eða gerst áskrifendur og fengið fréttabréfið sent mánaðarlega í tölvupósti.