Skip to main content

Fréttir

Frestur til að sækja um styrki til náms í íslensku sem öðru máli til 1. desember 2023

Skjaldarmerki Íslands

Frestur til að sækja um styrki til náms í íslensku sem öðru máli er til 1. desember. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum annast umsýslu með styrkjum menningar- og viðskiptaráðuneytis til stúdenta frá erlendum háskólum til íslenskunáms við Háskóla Íslands. Veittir eru um það bil tólf styrkir árlega fyrir BA-nám í íslensku sem öðru máli. Nemendur verða að hafa lokið a.m.k. einu ári á háskólastigi.

Sjá nánari upplýsingar um styrkinn og skráningarblað á ensku.