Skip to main content

Fréttir

Forseti Eistlands á handritasýningunni

Forseti Eistlands, Toomas Hendrik Ilves, og eiginkona hans, frú Evelin Ilves, voru í opinberri heimsókn á Íslandi 10. og 11. júní í boði forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar. Forsetarnir heimsóttu Þjóðmenningarhúsið, þar sem Markús Örn Antonsson forstöðumaður tók á móti þeim. Gestirnir skoðuðu handritasýningu Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum í fylgd Guðrúnar Nordal forstöðumanns stofnunarinnar.