Skip to main content

Fréttir

Fáum mönnum er Kári líkur. Nýtt afmælisrit frá Mettusjóði

Út er komið ritið Fáum mönnum er Kári líkur. Nítján kárínur gerðar Kára Kaaber sextugum 18. febrúar 2010. Ritið inniheldur stuttar og skemmtilegar greinar fræðimanna og félaga Kára til heiðurs.

Umsjón með útgáfunni höfðu Ari Páll Kristinsson, Ágústa Þorbergsdóttir og Jóhannes B. Sigtryggsson.

Starfsmenn Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum gefa út fjölrituð smárit til heiðurs samstarfsmönnum sínum og öðrum kollegum er þeir eiga merkisafmæli. Síðustu árin hafa þessi rit verið kennd við Menningar- og minningarsjóð Mette Magnussen, en eiginkona Árna Magnússonar hét Mette.